Saturday, October 31, 2015

KR slátraði Njarðvík í frumraun Hauks Helga


Við áttum von á talsvert mikið jafnari leik í Vesturbænum í gærkvöldi. Við flýttum okkur í Frostaskólið og tókum upphitun, hitting og burger áður en flautað var til leiks - allt eins og það á að vera fyrir hörkuleik tveggja stórliða.

En Íslandsmeistarar KR voru ekkert á því að halda einhverri spennu í viðureign sinni við Njarðvík. Þeir þurftu hvorki á Helga Magnússyni né Pavel Ermolinski að halda, þegar þeir völtuðu yfir þá grænklæddu 105-76.

Njarðvíkingarnir voru vissulega ekki með fullt lið heldur. Handsprengjan Stefán er í gönguskó og spilar ekkert með liðinu á næstunni, en dagurinn í gær snerist alls ekki um að væla út af meiðslum, heldur fagna komu Hauks Helga Pálssonar inn í Njarðvíkurliðið.

Haukur er slíkur hvalreki fyrir Suðurnesjaliðið að við ætluðum honum auðvitað að keyra beint í borgina og vinna KR. Það fór ekki alveg þannig eins og áður sagði, en það fer heldur enginn á taugum yfir óhagstæðum úrslitum í október - nema kannski Skagfirðingar.

Það var svo fjandi mikið að gera hjá okkur að taka myndir handa ykkur að við misstum af stórum hluta leiksins. Það er erfitt að lesa í spilamennsku á bak við linsuna. Við skulum kalla þetta ljómandi góða afsökun fyrir því að skrifa lítið sem ekkert um leikinn.

En þó voru nokkur atriði sem fóru ekki framhjá okkur. Við tókum eftir því að KR spilaði ljómandi fínan sóknarleik (reyndar gegn slökum varnarleik Njarðvíkinga) þar sem boltinn fékk á tíðum að fljúga milli manna og skapa opin þriggja stiga skot. Þetta er merkilegt þegar horft er til þess að það vantar jú besta leikstjórnanda deildarinnar í KR-liðið. Bæði lið lentu í klafsi og vandræðum annað slagið vegna leikstjórnarskorts, en KR tókst augljóslega betur að takast á við það. Leikmenn KR skiluðu flestir ljómandi góðum leik í gær og við vorum sérstaklega hrifin af því að þrír byrjunarliðsmenn meistaranna skiluðu 6+ stoðsendingum.

Þar fór Ægir Þór Steinarsson fremstur í flokki og reyndi að þrenna þetta upp með sjö stigum (sjö stigum? kommon), tíu fráköstum og níu stoðsendingum. Fagmaðurinn Darri Hilmarsson sletti líka á skýrsluna með 13/11/7 og Brynjar og Crayon voru solíðir.

Það var svo hinn 17 ára gamli Þórir Þorbjarnarson sem stal senunni í leiknum. Pilturinn skoraði 21 stig og henti niður fimm þristum í sjö tilraunum og er að neyða Finn þjálfara til að leyfa sér að spila, því hann hefur bætt við sig bæði stigum og mínútum í öllum fjórum leikjum KR í deildinni til þessa. Svo er það líka sérstakur plús að hann skuli vera örvhentur, það er alltaf gaman að horfa á örvhenta menn skjóta, jafnvel þó skotið þeirra sé dálítið flatt. Ef það fer ofan í, er öllum sama.

Þessi stóri skellur sem Njarðvíkingar fengu var ekki frumsýningin sem Haukur Helgi var búinn að sjá fyrir sér - það vitum við án þess að hafa sagt eitt orð við manninn. Hann gerði þó það sem hann gat og sýndi okkur annað slagið hvað hann er óhemju sterkur og fjölhæfur körfuboltamaður. Hann á eftir að gata nokkrar tölfræðiskýrslur í vetur, það er öruggt mál.

Njarðvíkurliðið á helling inni og þeir Friðrik Ingi Rúnarsson og Teitur Örlygsson munu sjá til þess að ná meira út úr því. Þetta var dálítið ljótt í gær og ljóst að það er mikil vinna fram undan hjá grænum, en þeir geta nú líka huggað sig við að þurfa ekki að spila við KR aftur alveg strax.

Það er haust og því fer enginn að missa sig í óðagot þó hann tapi körfuboltaleikjum. Við erum enn í október (þó að sé kominn nóvember þegar þú lest þetta) og þú vinnur ekkert í október, svo við rúllum okkur aðeins í 2. persónuna eins og Hubie Brown.

Það hefur ekki tíðkast hjá Friðrik Inga og Teiti að afsaka sig og sitt lið með væli út af meiðslum, en auðvitað gefur það augaleið að það vantar helling í Njarðvíkurliðið þegar það er án leikstjórnandans síns.

Látum þá liggja á milli hluta hvað hann er sterkur sóknarmaður, þeir sakna þess ekki síst að vera með mann sem getur stýrt aðgerðum liðsins á öruggan og yfirvegaðan hátt með fullri virðingu fyrir settum leikstjórnendum Njarðvíkinga.

Nú er komin upp sú staða að Keflavík og Detroit Pistons byrja leiktíðina 7-0 og einhver gæti jafnvel leitt hugan að því hvort það sé tilviljun eða ekki. Já, Keflvíkingar eru eina liðið sem er taplaust í pizzudeildinni okkar. Vel gert hjá þeim og gaman að þeir hafi fundið gleðina á ný.

Kjartan Atli og strákarnir í Körfuboltakvöldi á Sportinu halda áfram að gera þessu öllu góð skil, enda gagga allir af gleði yfir þessum frábæra þætti. Það eru tímamót í körfuboltaumfjöllun hérlendis og loksins er leikurinn okkar búinn að fá sérstakan vikulegan þátt til að kryfja málin. Föstudagskvöld eins og í gær eru hreinn og klár unaður fyrir körfuboltaáhugafólk, þar sem Sportið bauð upp á gúmmelaði frá sjö til tvö.

Við vissum að þetta yrði langur vetur hjá Hetti. Hnnngh!

Hey, nokkrar myndir úr DHL í gærkvöldi. Njótið.